
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3
sentímetra (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss
tækis og ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða
ígrædds hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá
hugsanlegri truflun í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með
slíkan búnað ættu:
● Alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sentímetra (6
tommu) fjarlægð frá lækningatækinu.
● Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
● Halda þráðlausa tækinu að eyranu sem er fjær
lækningatækinu.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
81

Viðbótaröryggisupplýsingar
● Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á
þráðlausa tækinu.
● Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda
lækningatækisins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með
ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við
heilbrigðisstarfsfólk.