 
Hringitónar, myndir og texti fyrir
tengiliði
Hægt er að tilgreina hringitón fyrir tengilið eða hóp, og mynd
og texta fyrir tengilið. Þegar tengiliðurinn hringir í þig spilar
tækið tiltekna hringitóninn og birtir textann eða myndina (ef
tækið ber kennsl á símanúmerið sem er sent með
hringingunni). 
Til að setja inn hringitón fyrir tengilið eða tengiliðahóp 
velurðu tengiliðinn eða hópinn og Valkostir >
Hringitónn, og síðan hringitón. 
Til að setja inn hringitexta fyrir tengilið velurðu tengiliðinn, 
og síðan Valkostir > Bæta við texta símtala. Sláðu inn
textann og veldu Í lagi. 
Til að setja inn mynd fyrir tengilið, sem vistuð er í minni 
tækisins, velurðu tengiliðinn, Valkostir > Bæta við mynd,
og mynd úr Gallerí. 
Til að hætta að nota hringitóninn skaltu velja Sjálfvalinn
tónn af hringitónalistanum. 
Til að skoða, breyta eða eyða myndinni velurðu tengiliðinn, 
Valkostir > Mynd, og tiltekinn valkost.