Spilun lags eða netvarpsþáttar
Til að bæta öllum lögum og netvörpum við tónlistarsafnið
velurðu Valkostir > Uppfæra safn.
Lag eða netvarpsþáttur er spilaður með því að velja
viðeigandi flokk og lagið eða þáttinn.
Hlé er gert á spilun með því að ýta á skruntakkann og henni
er haldið áfram með því að ýta á takkann aftur. Spilun er
stöðvuð með því að fletta niður.
Skruntakkanum er ýtt til vinstri eða hægri og haldið inni til
að spóla áfram eða til baka.
Flettu til hægri til að hlaupa yfir næsta atriði. Farið er í upphaf
hlutarins með því að fletta til vinstri. Til að hoppa yfir í fyrri
hlutinn flettirðu aftur til vinstri innan 2 sekúndna eftir að lag
eða netvarp hefst.
Hljóminum er breytt með því að velja Valkostir >
Tónjafnari.
Til að breyta hljómburðinum og steríóstillingunni eða auka
bassann skaltu velja Valkostir > Hljóðstillingar.
Til að sjá grafíska mynd við spilun skaltu velja Valkostir >
Sýna mynstur.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
27
Tónlist
Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í gangi
í bakgrunninum skaltu ýta á endatakkann.