Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir
að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið
við tækið.
3. Þegar tækið sýnir að
rafhlaðan er fullhlaðin
skaltu fyrst taka
hleðslutækið úr
sambandi við tækið og
síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða
rafhlöðuna með USB
gagnasnúru sem er tengd samhæfri tölvu.
1. Tengdu USB-gagnasnúruna við USB-tengi tölvu og einnig
við tækið.
2. Fjarlægðu USB-gagnasnúruna þegar rafhlaðan er
fullhlaðin.
Hleðsla með USB er afar breytileg. Í sumum tilvikum getur
tekið mjög langan tíma þar til hleðsla hefst og hægt er að
taka tækið í notkun. Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í
tiltekinn tíma og getur notað tækið á meðan það er í hleðslu.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að
hringja.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
10
Tækið tekið í notkun