
Kveikt og slökkt á tækinu
Haltu rofanum inni til að
kveikja og slökkva á símanum.
Ef ýtt er stutt á þennan takka
slítur það símtölum og lokar
forritum.
Ef tækið biður um PIN-númer
skaltu slá inn PIN-númerið og
velja Í lagi.
Ef tækið biður um
læsingarkóðann skaltu slá inn
læsingarkóðann og velja Í
lagi. Forstillt læsingarnúmer
er 12345.
Hægt er að stilla rétt tímabelti,
tíma og dagsetningu með því
að velja landið sem þú ert í og síðan staðartíma og
dagsetningu.