 
Hjálpartexti tækisins
Í tækinu eru leiðbeiningar um hvernig nota eigi forritin sem
fylgja því. 
Til að opna hjálpartexta í aðalvalmyndinni velurðu
>
Stillingar > Hjálp > Hjálp og forritið sem þú vilt fá
leiðbeiningar um. 
Þegar forrit er opið skaltu velja Valkostir > Hjálp til að 
skoða viðkomandi hjálpartexta. 
Til að breyta stærð hjálpartextans á meðan þú ert að lesa 
leiðbeiningarnar velurðu Valkostir > Minnka leturstærð
eða Auka leturstærð. 
Í lok hvers hjálpartexta eru tenglar að svipuðu efni. Ef þú velur 
undirstrikað orð birtist stutt útskýring. Hjálpartextar nota
eftirfarandi vísa: Tengill að tengdu efni. Tengill að
forritinu sem fjallað er um. 
Þegar þú lest fyrirmælin geturðu skipt á milli hjálpartexta og 
forrits sem er opið í bakgrunni með því að velja Valkostir >
Sýna opin forrit og viðeigandi forrit.