 
Leiðsögn
Veldu
>
Stillingar > Tenging > GPS-gögn og
Leiðsögn.
Staðsetning
Kveiktu á leiðarlýsingunni utandyra. Ef kveikt er á henni
innandyra er ekki víst að GPS-móttakarinn fái nauðsynlegar
upplýsingar frá gervihnöttunum. 
Við leiðarlýsingu er notaður snúningsáttaviti á skjá tækisins. 
Rauð kúla sýnir í hvaða átt áfangastaðurinn er og áætluð
vegalengd til áfangastaðar er sýnd inni í áttavitahringnum. 
Leiðsögnin sýnir beinustu leiðina og stystu vegalengdina til 
áfangastaðar, mælt í beinni línu. Ekki er tekið tillit til
hindrana á leiðinni, svo sem bygginga og náttúrulegra
farartálma. Og ekki er tekið tillit til hæðarmismunar þegar
fjarlægðin er reiknuð út. Leiðsögnin er aðeins virk þegar þú
ert á hreyfingu. 
Til að stilla á áfangastað skaltu velja Valkostir > Velja
ákvörðunarstað og leiðarmerki sem áfangastað eða slá inn
lengdar- og breiddargráður. 
Til að hreinsa áfangastaðinn sem valinn var fyrir ferðina 
velurðu Hætta leiðsögu.