
Tengistillingar
Veldu
>
Skilaboð og Valkostir > Stillingar >
Tölvupóstur > Pósthólf, pósthólf og Tengistillingar.
Móttekinn tölvupóstur
Stillingum fyrir móttekinn tölvupóst er breytt með því að
velja Móttekinn póstur og úr eftirfarandi:
● Notandanafn — Til að slá inn notandanafn þitt sem
þjónustuveitan þín lætur þér í té.
● Lykilorð — Sláðu inn lykilorðið þitt. Ef þú fyllir ekki út
þennan reit verður beðið um lykilorðið þegar þú reynir að
tengjast við ytra pósthólfið.
● Miðlari fyrir innpóst — Færðu inn IP-tölu eða heiti
hýsimiðlarans sem tekur við tölvupóstinum.
● Aðgangsstaður í notkun — Til að velja netaðgangsstað
(IAP).
● Nafn pósthólfs — Færðu inn heiti fyrir pósthólfið.
● Gerð pósthólfs — Tilgreindu samskiptareglur tölvupósts
sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með.
Valkostirnir eru POP3 og IMAP4. Ekki er hægt að breyta
þessum stillingum.
● Öryggi — Veldu öryggisvalkostinn sem nota á til að
tryggja öryggi tengingarinnar við ytra pósthólfið.
● Gátt — Tilgreindu gátt fyrir tenginguna.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
42

Skilaboð
● Örugg APOP-innskráning (aðeins fyrir
POP3) — Dulkóðaðu sendingu lykilorða til ytri
tölvupóstþjóns meðan tengst er við pósthólfið.
Sendur tölvupóstur
Stillingum fyrir sendan tölvupóst er breytt með því að velja
Sendur póstur og úr eftirfarandi:
● Tölvupóstfangið mitt — Sláðu inn tölvupóstfangið sem
þjónustuveitan lét þér í té.
● Miðlari fyrir útpóst — Sláðu inn IP-tölu eða heiti
póstþjónsins sem sendir tölvupóstinn þinn. Verið getur að
þú getir eingöngu notað útmiðlara þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Stillingarnar fyrir notandanafn, lykilorð, aðgangsstað, öryggi
og gátt líkjast þeim sem er að finna í mótteknum tölvupósti.