
Ritun og sending skilaboða
Veldu
>
Skilaboð.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
35

Skilaboð
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð eða skrifað
tölvupóst verða réttar tengistillingar að vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða.
Ef myndin sem bætt er inn fer yfir þessi mörk gæti tækið
minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.
Athugaðu stærðartakmörk tölvupóstskeyta hjá
þjónustuveitunni. Ef þú reynir að senda tölvupóst sem er yfir
mörkum tölvupóstmiðlarans eru skilaboðin áfram í
möppunni Úthólf og tækið reynir reglulega að senda þau.
Gagnatenging er nauðsynleg til að senda tölvupóst og
endurteknar tilraunir til að senda tölvupóst kunna að hækka
símreikning þinn. Hægt er að eyða slíkum skilaboðum í
möppunni Úthólf eða færa þau yfir í möppuna Drög.
1. Veldu Ný skilaboð > Skilaboð til að senda textaskilboð
eða margmiðlunarboð (MMS), Hljóðskilaboð til að senda
margmiðlunarboð sem innihalda eitt hljóðinnskot, eða
Tölvupóst til að senda tölvupóst.
2. Í reitnum Til skaltu ýta á skruntakkann til að velja
viðtakendur eða hóp viðtakenda úr tengiliðalistanum,
eða slá inn símanúmer eða tölvupóstfang viðtakandans.
Semíkomma (;) sem skilur að viðtakendur er sett inn með
því að ýta á *.
3. Í reitinn Efni skaltu slá inn efni tölvupóstsins. Til að breyta
sýnilegum reitum skaltu velja Valkostir >
Skilaboðahausar.
4. Skilaboðin eru skrifuð í skilaboðareitinn. Til að setja inn
snið eða minnismiða skaltu velja Valkostir > Setja
inn > Setja inn texta > Sniðmát eða Minnismiða..
5. Til að setja inn hlut (skrá) í margmiðlunarboð velurðu
Valkostir > Setja inn efni, tegund hlutarins eða slóð og
tiltekna hlutinn. Til að bæta nafnspjaldi, skyggnu,
minnismiða eða einhverri annarri skrá við skilaboðin
skaltu velja Valkostir > Setja inn efni > Setja inn
annað.
6. Til að taka mynd eða taka upp hljóð eða myndskeið fyrir
margmiðlunarboð velurðu Valkostir > Setja inn efni >
Setja inn mynd > Nýja, Setja inn myndskeið > Nýtt
eða Setja inn hljóð > Nýtt.
7. Til að setja viðhengi í tölvupóst velurðu Valkostir og
tegund viðhengis. Viðhengi í tölvupósti eru auðkennd
með .
8. Veldu Valkostir > Senda til að senda skilaboðin eða
styddu á hringitakkann.
Til athugunar: Táknið um að skilaboð hafi verið send,
eða texti sem birtist á skjá tækisins, merkir ekki að
viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein
skilaboð. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð.
Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra
tungumála taka meira pláss og takmarka þann stafafjölda
sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Ekki er víst að hægt sé að senda myndskeið sem eru vistuð á
MP4-sniði eða sem fara yfir leyfilega stærð
margmiðlunarboða á símkerfinu.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
36

Skilaboð
Ábending: Hægt er að sameina myndir, myndskeið,
hljóð og texta í kynningu og senda hlutina í
margmiðlunarskilaboðum. Byrjaðu að búa til
margmiðlunarboðin og veldu Valkostir > Setja
inn > Setja inn kynningu. Þessi valkostur sést aðeins
ef MMS-gerð er stillt á Með viðvörunum eða Allt.