
Stillingar fyrir tölvupóst
Veldu
>
Skilaboð og Nýtt pósthólf.
Til að geta notað tölvupóstinn þarftu að hafa valið gildan
internetaðgangsstað í tækinu og sett inn réttar
tölvupóstsstillingar.
Þú verður að vera með pósthólf. Fylgdu leiðbeiningunum frá
ytra pósthólfinu þínu og internetþjónustuveitunni.
Ef þú velur Skilaboð > Nýtt pósthólf og hefur ekki sett upp
tölvupóstsreikning er beðið um að þú gerir það. Til að velja
tölvupóstsstillingar með leiðbeiningunum skaltu velja
Byrja.
Þegar þú býrð til nýtt pósthólf kemur heitið sem þú gefur því
í stað pósthólfsins á aðalvalmynd skilaboða. Hægt er að vera
með allt að sex pósthólf.