Nokia Messaging
Nokia Messaging þjónustan sendir sjálfkrafa tölvupóst úr
netfangi þínu í tækið. Hægt er að lesa, svara og skipuleggja
tölvupóstinn á ferðinni. Nokia Messaging þjónustuna má
nota með mörgum algengum tölvupóstveitum á netinu, t.d.
tölvupóstþjónustu Google.
Mögulega er tekið gjald fyrir Nokia Messaging. Hafðu
samband við þjónustuveituna eða þjónustudeild Nokia
Messaging til að fá upplýsingar um hugsanlegan kostnað.
Símkerfið þarf að styðja Nokia Messaging og þjónustan er
hugsanlega ekki aðgengileg á öllum svæðum.
Nokia Messaging er eins og er aðeins boðið í prufuútgáfu.
Uppsetning á tölvupóstforriti Nokia
1. Veldu
>
Stillingar > Still.hjálp.
2. Þegar þú opnar stillingarhjálpina í fyrsta skipti þarftu að
tilgreina tölvupóststillingar á eftir stillingum
símafyrirtækisins. Ef þú hefur notað stillingarhjálpina
áður velurðu Póstuppsetning.
3. Lestu upplýsingarnar á skjánum og veldu Ræsa > Nokia
Messaging.
4. Samþykktu að setja upp Nokia Messaging forritið.
5. Sláðu inn upplýsingar um tölvupóstáskriftina.
Nokia Messaging forritið er sett upp í
>
Forrit.
Frekari upplýsingar eru á www.email.nokia.com.