
Símtalsstillingar
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Sími > Símtöl.
Veldu úr eftirfarandi:
● Senda mitt númer — Birtir símanúmerið þitt þeim sem
þú hringir í.
● Símtal í bið — Stilltu símann þannig að þú fáir tilkynningu
um símtöl sem berast þegar þú ert að tala í símann
(sérþjónusta).
● Hafna símtali með skilab. — Hafna símtali og senda
textaskilaboð til þess sem hringir.
● Texti skilaboða — Skrifa hefðbundin textaskilaboð sem
eru send þegar símtali er hafnað.
● Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða hafna
myndsendingu á meðan myndsímtali stendur.
● Mynd í myndsímtali — Birta kyrrmynd ef myndsending
á sér ekki stað í myndsímtali.
● Sjálfvirkt endurval — Stilltu símann þannig að hámark
10 tilraunir eru gerðar til að koma á sambandi við númerið
sem hringt er í. Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á
sjálfvirka endurvalinu.
● Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals á meðan á því
stendur.
● Samantekt símtals — Birta lengd símtals þegar því lýkur.
● Hraðval — Kveikja á hraðvali.
● Takkasvar — Lyklaborðssvar virkjað.
● Hávaðasía — Kveikja á hávaðasíu í hlust.
● Leit að tengiliði — Kveikja á tengiliðaleit á
heimaskjánum.