
Hringja símtal
Til að hringja slærðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmeri,
og ýtir á hringitakkann.
Ábending: Til að hringja til útlanda skaltu setja inn
plúsmerkið (+) í stað alþjóðlega svæðisnúmersins,
sláðu því næst inn landsnúmerið og svæðisnúmerið
(slepptu 0 í upphafi ef með þarf) og svo símanúmerið.
Til að ljúka símtali eða hætta við að hringja ýtirðu á hætta
takkann.
Opnaðu tengiliðina til að hringja í tengiliði sem eru vistaðir í
minninu. Sláðu inn fyrstu stafina í nafninu, flettu að nafninu
og ýttu á hringitakkann.
Til að hringja símtal með notkunarskránni ýtirðu á
hringitakkann til að sjá síðustu númerin sem þú hringdir í eða
reyndir að hringja í (allt að 20 númer). Flettu að númerinu
eða nafninu sem þú vilt hringja í og ýttu á hringitakkann.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrk símtals í
gangi.
Til að skipta úr venjulegu símtali yfir í myndsímtal velurðu
Valkostir > Skipta yfir í myndsímtal. Tækið slítur þá
raddsímtalinu og hefur myndsímtal við viðtakandann.
Hraðval
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Sími > Símtöl >