 
Myndsímtali komið á
Til að hringja myndsímtal skaltu slá inn símanúmerið eða
velja viðtakanda af tengiliðalistanum og Valkostir >
Hringja > Myndsímtal. Slökkt er á myndavél tækisins þegar
myndsímtalinu er komið á. Slökkt er á myndsendingum ef
myndavélin er þegar í notkun. Ef viðtakandi símtalsins vill
ekki senda þér hreyfimynd birtist kyrrmynd í stað hennar.
Veldu
>
Stillingar > Stillingar og Sími > Símtöl >
Mynd í myndsímtali til að velja kyrrmynd sem er send úr
tækinu í stað hreyfimyndar. 
Til að slökkva á sendingu hljóða, hreyfimynda eða 
hreyfimynda og hljóða velurðu Valkostir > Óvirkja >
Hljóð, Hreyfimynd eða Hljóð & myndskeið. 
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrk 
myndsímtals sem er í gangi. 
Til að nota hátalara velurðu Valkostir > Virkja hátalara. Til 
að slökkva á hátalaranum og nota símtólið velurðu
Valkostir > Virkja símtól. 
Til að víxla myndum velurðu Valkostir > Víxla myndum. 
Til að stækka myndina á skjánum velurðu eða Valkostir > 
Aðdráttur og flettir upp eða niður. 
Til að ljúka myndsímtalinu og koma á venjulegu símtali við 
sama viðmælanda velurðu Valkostir > Skipta yfir í
raddsímtal.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
23
 
Símtöl