
Reiknivél
Veldu
>
Forrit > Skipuleggj. > Reiknivél.
Nákvæmni reiknivélarinnar er takmörkuð og hún er ætluð til
einfaldra útreikninga.
Til að reikna skaltu slá inn fyrstu töluna í útreikningnum.
Veldu valkost af aðgerðakortinu, til dæmis samlagningu eða
frádrátt. Sláðu inn aðra tölu útreikningsins og veldu =.
Reiknivélin reiknar tölur í þeirri röð sem þær eru slegnar inn.
Útkoman birtist á skjánum og hægt er að nota hana sem
fyrstu töluna í nýjum útreikningi.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
63

Office-forrit
Tækið vistar niðurstöðu síðasta útreiknings í minni sínu.
Talan er áfram í minninu þó svo að forritinu sé lokað eða
slökkt sé á tækinu. Hægt er að sækja vistuðu niðurstöðuna
næst þegar reiknivélin er opnuð með því að velja Valkostir >
Síðasta útkoma.
Til að vista útreikninginn velurðu Valkostir > Minni >
Vista.
Til að sækja niðurstöðu úr útreikningi í minnið og nota í
öðrum útreikningi velurðu Valkostir > Minni > Úr minni.