 
Niðurhöl
Eftir að hafa gerst áskrifandi að netvarpi á safnsíðu, með leit
eða með því að slá inn veffang geturðu sýslað með, hlaðið
niður og spilað þætti í Podcasts. 
Til að sjá hvaða netvarpsþáttum þú hefur gerst áskrifandi að 
skaltu velja Podcasting > Podcasts. 
Til að sjá titla einstakra þátta (þáttur er ákveðin miðlunarskrá 
í netvarpi) velurðu netvarpstitilinn. 
Til að hefja niðurhalið velurðu titil þáttarins. Til að hlaða 
niður (eða halda áfram niðurhali á) völdum eða merktum
þáttum velurðu Valkostir > Hlaða niður. Hægt er að hlaða
niður mörgum þáttum á sama tíma. 
Til að spila hluta af netvarpi meðan á niðurhali stendur eða 
þegar því hefur verið hlaðið niður velurðu það og Valkostir >
Spila sýnishorn.
Internet
Netvörð sem hefur verið hlaðið niður að fullu vistast í Netvörp
möppunni. Þau sjást hins vegar ekki fyrr en safnið er uppfært.