
Netvarpsstillingar
Veldu
>
Internet > Podcasting.
Veldu tengi- og niðurhalsstillingar áður en þú notar
Podcasting.
Tengistillingar
Veldu Valkostir > Stillingar > Tenging og svo úr
eftirfarandi:
● Sjálfgef. aðgangsstaður — Velja aðgangsstaðinn sem er
notaður til að tengjast við internetið.
● Slóð leitarþjónustu — Tilgreina veffang leitarþjónustu
netvarpsins, til að nota við leit fyrir netvarpið.
Stillingar fyrir niðurhal
Veldu Valkostir > Stillingar > Niðurhal og svo úr
eftirfarandi:
● Vista á — Veldu hvar netvörpin eru vistuð.
● Uppfærslutími — Tilgreindu hversu oft netvörp eru
uppfærð.
● Næsti uppfærslutími — Til að tilgreina tíma fyrir næstu
sjálfvirku uppfærslu.
55

Internet
Sjálfvirkar uppfærslur eiga sér bara stað ef ákveðinn
sjálfgefinn aðgangsstaður er valinn og Podcasting er í
gangi.
● Takmörk niðurhals (%) — Til að tilgreina hlutfall minnis
sem er ætlað fyrir niðurhal á netvörpum.
● Ef efni fer yfir takmörk — Tilgreindu hvað gera skal ef
farið er fram úr takmörkunum á niðurhali.
Það að stilla forritið á að sækja podcast sjálfkrafa getur falið
í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitu.
Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá frekari
upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.
Velja frumstillingar — Veldu Valkostir > Upprunalegar
stillingar.