
Vefstillingar
Hægt er að nota ýmsar stillingar til að auka vaframöguleika
eftir þörfum.
Veldu
>
Internet > Vefur og Valkostir > Stillingar
og svo úr eftirfarandi:
Almennar stillingar
● Aðgangsstaður — Breyta sjálfgefnum aðgangsstað.
Sumir eða allir aðgangsstaðir tækisins kunna að vera
forstilltir af þjónustuveitunni. Ekki er víst að hægt sé að
breyta þeim, búa til nýja eða eyða þeim.
● Heimasíða — Tilgreina heimasíðuna.
● Smákort — Gera smákort virk eða óvirk. Smákortin koma
að gagni þegar vefsíður eru skoðaðar.
● Listi yfir fyrri síður — Ef þú velur Kveikt á meðan þú
vafrar skaltu velja Til baka til að sjá lista yfir síður sem
skoðaðar hafa verið í þessari törn.
● Öryggisviðvaranir — Til að fela eða birta
öryggisviðvaranir.
● Java/ECMA forskrift — Til að leyfa eða leyfa ekki
forskriftir.
● Java/ECMA forskr.villur — Láta tækið taka við
tilkynningum um forskriftir.
● Opna við niðurhal — Gera kleift að opna skrá á meðan
henni er hlaðið niður.
Stillingar á síðum
● Hlaða efni — Velja hvort þú vilt hlaða inn myndum og
öðrum hlutum á síðum. Ef þú velur Aðeins texti skaltu
velja Valkostir > Birtingarkostir > Hlaða inn
myndum til að hlaða inn myndum og öðrum hlutum
seinna.
● Sjálfvalin kóðun — Velja aðra kóðun ef stafir birtast ekki
á réttan hátt (fer eftir tungumáli).
● Loka fyrir sprettiglugga — Leyfa eða loka fyrir sjálfvirka
opnun sprettiglugga á meðan vafrað er.
● Sjálfvirk hl
meðan vafrað er.
eðsla — Láta vefsíður uppfærast sjálfkrafa
● Leturstærð — Til að velja leturstærð fyrir vefsíður.
Einkastillingar
● Nýlega opnaðar vefsíður — Til að kveikja eða slökkva á
sjálfvirkri vistun bókamerkja. Ef halda á áfram að vista
vefföng þeirra síðna sem eru skoðaðar í möppunni Nýlega
opnaðar vefsíður en sýna ekki möppuna á
bókamerkjaskjánum skaltu velja Fela möppu.
● Vistun innsláttar — Velja hvort þú vilt að lykilorð eða
upplýsingar sem þú slærð inn á ýmsum stöðum á vefsíðu
séu vistaðar og notaðar næst þegar síðan er opnuð.
● Fótspor — Til að kveikja eða slökkva á móttöku og
sendingu fótspora (cookies).
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
52

Stillingar strauma
● Aðg.st. f. sjálfv. uppfærslu — Velja aðgangsstað fyrir
uppfærslur. Þessi valkostur er aðeins í boði þegar kveikt
er á Sjálfvirkar uppfærslur.
● Uppfæra í reiki — Gera sjálfvirka uppfærslu vefstrauma
virka í reiki.