
Niðurhal og kaup á hlutum
Hægt er að hlaða niður niður hlutum eins og hringitónum,
myndum, skjátáknum símafyrirtækis, þemum og
myndskeiðum. Sumir þessara hluta eru ókeypis á meðan
aðrir eru til sölu. Hlutir sem hlaðið er niður eru meðhöndlaðir
af viðeigandi forritum tækisins. T.d. er ljósmynd sem hlaðið
hefur verið niður vistuð í Galleríinu.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified.
Hlut hlaðið niður:
1. Veldu tengilinn.
2. Veldu viðeigandi valkost til að kaupa hlutinn (t.d. Buy ).
3. Lestu vandlega allar upplýsingar.
4. Til að halda áfram eða hætta við niðurhal skaltu velja
viðeigandi valkost (t.d. Accept eða Cancel ).
Þegar byrjað er að hlaða niður efni birtist listi yfir það sem er
í gangi hverju sinni og það sem búið er að hlaða niður.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
50

Internet
Til að breyta listanum velurðu Valkostir > Niðurhal. Veldu
hlut á listanum og Valkostir til að hætta við niðurhal, eða til
að opna, vista eða eyða efni sem búið er að hlaða niður.