 
Öryggi
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU 
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun 
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann
að valda truflunum eða hættu. 
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR 
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal 
hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við
akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri. 
TRUFLUN 
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, 
sem getur haft áhrif á virkni þeirra. 
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM 
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu 
um borð í flugvélum, nærri lækningatækjum,
eldsneytisstöðvum, efnaverksmiðjum eða
svæðum þar sem verið er að sprengja. 
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA 
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera 
við þessa vöru. 
AUKABÚNAÐUR OG RAFHLÖÐUR 
Aðeins má nota samþykktan aukabúnað og 
rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI 
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.